Þú sérsníður þinn Jaguar með aukahlutum. Þú veist að við tryggjum þig gegn slysum og bilunum. Þú veist að bíllinn helst í frábæru ástandi. Allt er þetta hluti af stuðningi okkar.
ÁBYRGÐIR
Njóttu þess að vera áhyggjulaus vitandi að Jaguar ábyrgðin er gerð sérstaklega fyrir eigendur
Jaguar bifreiða.
Nýr Jaguar er í fimm ára ábyrgð, eða að 150.000 km akstri, hvort sem fyrr verður gegn því að þjónustu sé sinnt samkvæmt fyrirmælum framleiðanda. 5 ára ábyrgðin á við um nýskráða bíla frá 1. júlí 2022.
Þegar ákveðið var að bjóða upp á aldrif í Jaguar-bílum skoðuðu verkfræðingar fyrirtækisins hvert einasta kerfi á markaðnum. Ekkert þeirra gat skilað þeirri einstöku upplifun sem kaupendur búast við af Jaguar. Lausnin var sú að þróa sérstakt Jaguar-aldrif með IDD-kerfi.
Álfelgur eða pakki fyrir vetrarakstur. Val út frá fagurfræði eða notkunarmöguleikum. Við erum með allt sem þú þarft til að sérsníða bílinn þinn og að sjálfsögðu samþykkta varahluti frá Jaguar.
Hver einasta bílferð í Jaguar-bílnum þínum ætti að vera jafnspennandi og sú fyrsta, óháð árstíma. Til að Jaguar-bíllinn haldi fullum afköstum allan veturinn mælum við með því að þú fylgir þessum tilmælum frá sérfræðingum okkar til að vernda bæði þig og bílinn.
Þú getur uppfært þinn Jaguar í gegnum upplýsinga- og afþreyingarkerfið. Með því að uppfæra bílinn færðu alla nýjustu eiginleikana og tryggir þínum Jaguar besta stöðugleika sem völ er á. Þráðlausar uppfærslur eru í boði fyrir alla nýjustu bílana okkar.
Réttingar- og málningarverkstæði BL ehf. vinnur undir ströngum gæðakröfum og stöðlum Jaguar . Starfsfólk réttingar- og málningarverkstæðis hefur auk þess hlotið þjálfun í meðhöndlun nýjustu efna og úrlausna til viðgerða á bílunum því einungis þannig er hægt að tryggja gæði viðgerða.
InControl er þjónustu- og forritapakki sem myndar tengingu við bílinn sem og hnökralausa og örugga tengingu við umheiminn. InControl fylgir þér hvert sem er, jafnvel þegar þú ert ekki í bílnum, og tryggir að upplifun þín af Jaguar hefur aldrei verið ánægjulegri.